Keilumót Bpro var haldið með pompi og prakt í Keiluhöllinni, Egilshöll á dögunum. Þátttakendur voru hátt í 100 talsins og mættu allir heldur betur með keppnisskapið í lagi.
Á meðal gesta var Donald Trump sem mætti með lífvarðateymið með sér svona til að tryggja að það færi örugglega allt sómasamlega fram!

M Hárstofa

Snyrtistofan Vár

Blondie - Síðumúla

Hársmiðjan

Gallerí Útlit

Slippurinn

Snyrtistofan Dimmalimm

Emóra

Blondie - Garðatorgi

Klippistofa Jörgens

Portið

Beauty Salon
Fellur og feykjur a plenty
Það var ekkert gefið eftir í keppninni og tikkuðu stigin hratt inn á sumum brautum (þó aðeins hægar á öðrum!).




Sigurvegarar kvöldsins

Sir Arnar Gauti dæmdi í búningakeppni keilumótsins en það voru brúðirnar og presturinn þeirra af Emóru sem unnu þá keppni.

Frikki á Slippnum kom, sá og sigraði mótið með ábyggilega helmingi fleiri stigum en næsti maður, en þess má geta að hann sigraði einnig síðasta keilumót!

Takk fyrir okkur!
Bpro teymið þakkar fyrir algjörlega frábært kvöld. Við hlökkum til að endurtaka leikinn við tækifæri!

Leave a comment