Hátíð ljóss og friðar er dásamlegur tími þar sem við gleðjumst með ástvinum okkar. En þessari hátíð fylgir oft mikið óhóf í mat, drykk og lífstíl. Ofan á það bætast miklar sviptingar í veðri og vindum, en hitastig getur breyst mjög hratt með tilheyrandi áhrifum á húð, hár og heilsu.
Það er alltaf nauðsynlegt að hugsa vel um húð og hár en það þarf sérstaklega góða umhirðu á svona álagstímum.
Jólahúð
Eins og alltaf þarf að yfirborðshreinsa húðina kvölds og morgna og djúphreinsa hana 1-2x í viku.
Cleansing Cream andlitshreinsir og Enzymatic Powder djúphreinsir
Við mælum með því að nota góðan maska 1-2x í viku eftir djúphreinsun og í sumum tilfellum má hreinlega sofa með maskann ef það á við. Við mælum líka með góðum augnmaska til að draga úr bólgum og þrota og vinna á yfirborðslínum og hrukkum.
Það getur verið gott að færa sig yfir í ríkari krem en venja er að nota því veður, matur, drykkur og streita ganga verulega á raka húðar og það geta myndast bólgur, ójafnvægi og hreinlega viðkvæmni. Sólarvörn er líka mjög mikilvæg á veturna til að vernda húðina fyrir umhverfisáreiti og endurkasti.
Polypeptide Rich Cream andlitskrem
Jólahár
Á þessum árstíma þornar hárið oft mikið og ójafnvægi getur myndast í hársverði. Við gerum líka meira af því að nota hitatæki á þessum tíma fyrir allar veislurnar, boðin og tónleikana. Við getum ekki ítrekað nauðsyn hitavarnar nógu mikið í þessu samhengi en góð hitavörn ætti að vera til á öllum heimilum þar sem eru notuð raftæki fyrir hár.
label.m Heat Protection Mist hitavörn
Alveg eins og með húðina getur verið gott að nota ríkara sjampó og hárnæringu. Það er líka nauðsynlegt að nota góða maska fyrir hárið allavega 1x í viku hvort sem það er til að afeitra hárið, gefa því raka eða fyrir endurheimt.
Davines Love Smoothing Instant Mask djúpnæring
Hreyfing og svefn
Hreyfing og góður svefn skipta verulega miklu máli þegar kemur að hreilbrigði húðar og hárs. Við þurfum því að muna að drekka vel af vatni og passa að taka nóg af D vítamíni og steinefnum.
Við mælum með heimsókn á snyrtistofu og hárgreiðslustofu til að fá rágjöf um rétt vöruval og umhirðu hjá fagmanni.
Gleðilega hátíð!
Leave a comment